
Þegar Maxímús Músíkús villist inn í tónlistarhúsið verður hann forvitinn um allt sem hann sér. Langar þig líka að vita meira um hljóðfæri og tónlist? Þetta er þrautabók fyrir alla krakka sem hafa gaman af tónlist.
Í bókinni eru skemmtilegar og fjölbreyttar þrautir.
Hægt er að hjálpa Maxa að……
- komast í gegnum flókin völundarhús
- búa til fjölbreytt heimahljóðfæri
- setja nótur á nótnastreng
- læra að þekkja hljóðfæri og nótur
- teikna lita og líma
- og margt, margt fleira!
Höfundar: © Hallfríður Ólafsdóttir, Linda Margrét Sigfúsdóttir og Þórarinn Már Baldursson 2015
Útgefandi: Mál og menning
Verð: 1.790 kr.
